Dagur til að hvílast og tengjast
Heill dagur þar sem við blöndum saman tónum, náttúru og slökun í sveitinni á Suðurlandi.
Þú tekur þátt í leiddri hugleiðslu, tónheilun og Reiki, andar að þér íslenskri náttúru og hvílist í kyrrðinni. Guðný og Stefán leiða daginn og halda rýmið fyrir þig.
Á leiðinni förum við á rúntinn og skoðum fallega staði á Suðurlandinu.
Allir eru velkomnir, einir, með maka, vinum eða í hópi.
Verð og innifalið
Verð á mann. Hafðu samband fyrir hópatilboð.
Innifalið
- Matur yfir daginn, þar á meðal hádegis- og kvöldverður
- Vatn, te og kaffi allan daginn
- Leidd hugleiðsla, tónheilun og Reiki
- Skoðunarferð
- Akstur á meðan á deginum stendur
- Gjöf: hálsmen úr eldfjallaösku
Ekki innifalið
- Akstur frá Reykjavík eða Keflavíkurflugvelli (hægt að bæta við)
- Ferðatryggingar
Dagskrá dagsins
Morgunmatur og hreyfing
Léttur morgunmatur og mjúk hreyfing til að vekja líkamann.
Raddheilun
Við stillum orkustöðvarnar með röddinni.
Hugleiðsla með tónheilun
Leidd hugleiðsla með gong og hljóðskálum.
Hádegisverður og skoðunarferð
Hádegisverður á veitingastað í sveitinni og skoðunarferð.
Hljóð og Reiki
Tónheilun og Reiki í rólegheitum.
Eldathöfn og kirtan
Eldathöfn með "ceremonial" kakó, trommuhringur og söng.
Hugleiðing
Við ljúkum deginum með hugleiðingum og dagbókarskrifum.
Algengar spurningar
Getið þið sótt mig?
Já. Við getum sótt þig á Selfoss, í Reykjavík eða á Keflavíkurflugvöll gegn aukagjaldi. Láttu okkur vita í beiðninni.
Hentar þetta byrjendum?
Já. Dagurinn hentar öllum, hvort sem þú hefur prófað tónheilun og hugleiðslu áður eða ekki.
Get ég fengið sérfæði?
Já. Grænmetis-, vegan-, glútenlaust og annað sérfæði er í boði ef þú lætur okkur vita fyrirfram.
Hvað ef ég þarf að afbóka?
Þú færð fulla endurgreiðslu ef þú afbókar að minnsta kosti einum degi áður.
Get ég gist?
Já, hægt er að bæta við nótt fyrir eða eftir daginn fyrir 12.900 kr.
I needed to reflect, recharge and reconnect with myself and with nature. Everything felt aligned and I just had to take the plunge and listen to my intuition.
Komdu eins og þú ert
Segðu okkur hvað þú vilt og hvenær. Við höfum samband og finnum tíma saman.
- StaðurLangamýri 1, 805 Selfoss (Grímsnesi)
- Sími+354 853 3339
- Netfangarmonia@armonia.is