Rými til að skapa, finna og vera
Einn eða tveir dagar með Guðnýju Láru og Stefáni, með möguleika á gistingu.
Þú velur hvað þú vilt leggja áherslu á: skapandi vinnustofur, hugleiðslur, gong og hljóðskálar, Reiki eða eldathöfn. Við mótum stundina í kringum þig.
Stundin fer fram í Langamýri í Grímsnesi, í kyrrðinni og náttúrunni á Suðurlandi.
Einn eða tveir dagar
Sendu okkur beiðni og segðu okkur hvaða dagar henta og hvað þú vilt leggja áherslu á.
1 dagur
Þín stund
Heill dagur sem við mótum eftir þínum áherslum.
59.900 kr.
2 dagar
Þín stund
Tveir dagar, með möguleika á gistingu.
79.900 kr.Þú velur úr
- Skapandi vinnustofur
- Hugleiðslur
- Gong og hljóðskálar
- Reiki
- Eldathöfn
Svona virkar þetta
Þú sendir beiðni
Segðu okkur hvaða dagar henta og hvað þú vilt leggja áherslu á.
Við mótum upplifunina
Við höfum samband og setjum saman stund sem hentar þér.
Þín stund
Þú mætir, hvílist og nýtur. Við sjáum um restina.
Algengar spurningar
Þarf ég einhverja reynslu?
Nei. Stundin hentar öllum, hvort sem þú hefur prófað hugleiðslu og tónheilun áður eða ekki.
Hvar fer þetta fram?
Í Langamýri 1 í Grímsnesi, um klukkustund frá Reykjavík.
Get ég gist?
Já. Þegar þú velur tvo daga er möguleiki á gistingu. Spurðu okkur í beiðninni.
Get ég gefið þetta að gjöf?
Já. Gjafabréf fæst í versluninni okkar.
My mind was clearer. I felt like I understood myself better. I accepted myself finally.
Komdu eins og þú ert
Segðu okkur hvað þú vilt og hvenær. Við höfum samband og finnum tíma saman.
- StaðurLangamýri 1, 805 Selfoss (Grímsnesi)
- Sími+354 853 3339
- Netfangarmonia@armonia.is